Þvottapokinn.
Ég átti pantaðan tíma hjá kvensjúkdómalækninum mínum
seinna í vikunni.
Snemma morguns, var hringt í mig heim og mér sagt að búið væri
að
flýta tímanum mínum og ég ætti að mæta samdægurs kl. 9:30
Ég var ný búin að koma öllum heimilismeðlimum af mér í skóla og
vinnu og klukkan þegar orðin 8:45
Það tæki mig 35 mínótur að aka til læknisins svo ég hafði engan
tíma
aflögu.
Eins og flestar konur, þá vil ég nú þrífa prívatið alveg
sérstaklega vel fyrir svona skoðanir, en í þetta skiptið var
ekki
tími til þess.
Svo ég dreif mig inná baðherbergi, henti af mér náttfötonum og
snarlega strauk yfir prívatið með þvottapoka sem ég greip hjá
vaskinum og
bleytti undir krananum, jæja ég væri allavega boðleg í skoðunina
svona.
Ég henti þvottapokanum ofaní óhreinatauskörfuna, skellti mér í
föt, snaraði mér útí bíl og hélt af stað.
Ég var í biðstofunni aðeins í fáeinar mínútur þegar ég var
kölluð inn. Og einsog þetta fer fram, sem ég reikna með að þú
kannist við, þá henti ég mér uppá skoðunarbekkinn, horfði eitthvað
útí bláinn og ímyndaði mér að ég væri einhverstaðar í París... eða
langt langt í burtu.
Ég var svolítið hissa þegar læknirinn sagði "ja hérna það
er
aldeilis við höfum lagt okkur fram um að vera flottar og
fínar í
dag,,
) Ég svaraði þessu engu.
Eftir skoðunina var mér létt og ég fór heim að sinna
þessu vanalega,
þrífa, versla og elda....
Þegar 6 ára dóttir mín kom heim eftir skóla og var að leika
sér,
kallaði hún útaf baðherberginu, "mamma hvar er þvottapokinn
minn?,,
Ég sagði henni að ná sér í hreinann í skúffuna.
Hún svaraði "nei ég vil fá þennan sem var á vaskinum, ég
nebblega
geymdi allt glimmerið mitt í honum."